Verkefni

Nýleg verk, eins og þau litu út þegar við gengum frá.

Aðaltöfluskipti, breytingar úr einfasa í þriggja fasa og hleðslustöðvar. Smelltu á mynd til að sjá hana stærri.

  • Aðaltafla
  • Þríbýli
  • Undirbúið fyrir hleðslustöðvar

Endurnýjun á aðaltöflu í þríbýli

Allur búnaður var endurnýjaður og bætt við bilunarstraumsrofum fyrir hvern eignarhluta. Um leið var ráðstafað plássi og tengimöguleikum fyrir hleðslustöðvar, svo íbúarnir geti bætt þeim við þegar þeim hentar án þess að opna töfluna aftur.

  • Aðaltafla
  • Þriggja fasa
  • Hleðslustöð

Aðaltafla, þriggja fasa og Tesla hleðslustöð

Aðaltaflan var endurnýjuð og um leið uppfærð í þriggja fasa. Í sömu ferð var sett upp Tesla hleðslustöð.

  • Aðaltafla
  • Þriggja fasa
  • Inntaksbox

Aðaltafla og inntaksbox endurnýjuð

Tækifærið var nýtt til að breyta úr einfasa yfir í þriggja fasa. Inntaksboxið var endurnýjað í leiðinni, enda komið á tíma.

  • Hleðslustöð
  • Frágangur

Hleðslustöð í lit við húsið

Hvít stöð passaði ekki við húsið, svo það var einfaldlega skipt um front og hann hafður dökkur. Lítið mál sem munar öllu þegar stöðin hangir á framhliðinni.

Það sem stendur á bak við verkin

100% mæla meðAf 113 umsögnum á Facebook-síðunni.

Löggiltur rafverktakiSkráð í landsskrá rafverktaka hjá HMS.

SveinsbréfSkráð á sveinalista RAFÍS.

Segðu okkur frá verkinu.

Lýstu því í nokkrum línum eða sendu mynd. Þú færð svar og fast verð, yfirleitt samdægurs.